Monday, December 29, 2008

Annáll 2008

Núna er ansi viðburðaríku ári að ljúka...... ýmislegt merkilegt hefur gerst hjá okkur Elísu.
Ég held ég nenni ekki að skrifa fullan útdrátt á því helsta sem hefur skeð á árinu svo ég nefni aðeins það helsta.....

Janúar

Við vorum nýflutt út úr bestu íbúð sem ég hef búið í á Íslandi, kjallaranum okkar á Laufásveginum með fallegu grænu hringjunum.
Við fluttum heim á Þelamörkina.
Febrúar
Við stoppuðum ekki lengi á mörkinni, við fórum á ferðalag í lok janúar, sem leiddi okkur um London, Ítalíu frá Suðri til Norðurs og Vestri til Austurs. Þaðan til Slóveníu svo 2 vikur í Austurríki (Ég elska landið), þaðan fórum við um Lichtenstein, Sviss, Frakkland, Þýskaland, Svíðþjóð og svo Danmörku þar sem við skipulögðum fluttninga um haustið og fyrirhugað nám í Kaupmannahöfn.
Maí-ágúst
Í sumar unnum við í Reykjavík, ég á ÍSOR og Elísa á Marbakkanum. Stórmerkilegir hlutir eins og jarðskjálfti o.fl. var viðfangsefnið...........Stuð???
September
Í lok ágúst fluttum við svo til Danmerkur, án íbúðar og húsgagna fórum við út með það í huga að finna okkur stað að búa á.
Þar settumst við upp á Óla og Svanhildi og ég held að við getum seint þakkað þann greiða til fulls........(Kanski ég segi takk núna um áramótin)
Október
Við fengum svo íbúð hérna í eldriborgara blokkunum okkar, sem er fínt. Engin læti um helgar og ég held að flestir hérna séu heyrnalausir..........kostur
Nóvember
Í nóvember fór ég í mánuð til Argentínu.....að safna grjóti.....já og taka myndir af því líka....heljarennar ævintýri.
Desember
Desember fór í jólagjafapælingar hjá mér og algjöra leti.....ég var gjörsamlega búinn eftir Argentínu.
Anna Kristín og Stefanía komu í heimsókn, sem var stórskemtilegt. Vona að fleiri sjái sér fært að kíkja á okkur.

Stutt skrepp til Íslands yfir helstu hátíðisdagana (kom heim úr í gær).....Takk fyrir mig

Næst á dagskrá eru svo áramótin en þeim verður fagnað með Óla og Svanhildi......Jibbíííí

2009
Næsta ár verður ekki síður spennandi
Hlín, Thelma og Helgi flytja út
“Jónas” Ólafsson er væntanlegur
Matta er búin að lofa mér knúsi í 11/2 ár......í ár munum við standa við það.

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla

Jónas og Elísa

5 comments:

Anonymous said...

Hæhæ það var gott að hafa þig hjá okkur um jólin vildum að Lísa hefði komið líka í heimsókn. Það hefði verið gaman að hafa ykkur hér heima yfir áramótin til að hoppa með okkur inn í nýtt ár en þið gerið það bara saman þarna úti svo komum við í janúar og gerum e hskemmtilegt saman:) Hafið það gott á morgun, verðum í bandi.
Kv Hlín.

Anonymous said...

Góður pistill, hlökkum til að sjá ykkur í kvöld. Það er aðeins verra ef "Jónas" Ólafsson verður stelpa, hvað þá????

Anonymous said...

hmmm já gelymdi að skrifa. Kv. Svanhildur

Anonymous said...

Nú ef "Jónas" Ólafsson verður stelpa þá verður hún náttlega Unnur Elísa Ólafsdóttir heheh
Hafið það sem allra best í kvöld, okkur langar bara mikið að koma og vera um áramótin með ykkur... kannski næst :o)

Anonymous said...

Þegar maður les minningargreinar dagblaðanna þá var fólk hér áður fyrr ekki feimið við að bæta "sína" vaftanvið nöfnin á börnin = jónasína :)
Vonandi hafið þið hoppað inn í nýja árið að gömlum og góðum sið, gleðilegt ár öll, kveðja Addý-mamma